Hótel Natur

Einstakt sveitahótel umvafið náttúrufegurð

 

Rúmgóð herbergi

Hvert herbergi er með sér baði, sjónvarpi og skrifborði

 

Matsalur og fundaraðstaða

Stór matsalur og rúmgóður fundarsalur.

 

Veitingar

Hlaðborð og úrval góðra veitinga í boði

 

Einstök staðsetning

Staðsetningin býður upp á fjölbreyttar dagsferðir í allar áttir

 

Ýmis afþreying í boði

Billjard, borðtennis og margt fleira

Hótel Natur er fjölskyldurekið sveitahótel á Þórisstöðum í Eyjafirði, miðsvæðis á Norðurlandi. Hótelið byggir á umhverfisvænni samfélagsstefnu sem leggur aðaláherslu á endurnýtingu, orkusparnað, að koma í veg fyrir sóun matvæla og að nýta vinnuafl og aðföng úr heimabyggð.

Hlaða, fjós og vélageymsla hafa verið endurbyggð og breytt í hótel. Jafnvel gamall votheysturn er nýttur sem útsýnisturn. Nýlega keyptum við næstu jörð, Leifshús, og þar eru nú sambærileg herbergi og á Þórisstöðum. Aðeins eru 300-400 metrar milli jarðanna.

Við viljum tryggja gestum okkar sem best aðgengi að náttúru svæðisins með góðum göngustígum niður í fjöru og upp í fjall og bjóðum upp á létta afþreyingu úti sem inni.

Verið hjartanlega velkomin og njótið kyrrðar með útsýni til allra átta.