Um okkur

Við, Hanna Sigurjónsdóttir og Karl Ingimarsson eigum og rekum hótelið síðan 1. júní 2022. Þann dag keyptum við hótelið sem nágrannar okkar Inga og Stefán höfðu byggt upp og rekið ásamt fjölskyldu sinni síðan 2005. Okkur til aðstoðar eru foreldrar, börn og tengdabörn, auk annars starfsfólks 🙂

Veröld sem var

Fyrri hóteleigendur Stefán og Inga keyptu jörðina 1992 var hér vel rekinn kúabúskapur. Búið var strax stækkað nokkuð og lengst af voru hér um 30 mjólkurkýr og 140.000 lítra framleiðsla á ári.

Breytingaskeiðið

Þegar ákveðið var að hætta kúabúskap og hefja rekstur sveitahótels vorið 2004 var ráðist í umfangsmiklar breytingar á fjósi hlöðu og mjaltaaðstöðu.

Umhverfisstefna

Stefna Hotel Natur er að byggja upp og reka hótelið undir merkjum sjálfbærar þróunar, í anda Staðardagskrár 21. Eitt veigamesta atriðið í því skyni er að nýta eldri byggingar…